07.05.1982
Neðri deild: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4908 í B-deild Alþingistíðinda. (4678)
90. mál, Hæstiréttur Íslands
Friðrik Sophusson:
Herra forseti. Í trausti þess, að sú fjölgun hæstaréttardómara sem verið er að samþykkja hér með samþykkt þessarar greinar, verði ekki til þess að seinka um of framlagningu frv. um lögréttu, segi ég já.