07.05.1982
Neðri deild: 88. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4911 í B-deild Alþingistíðinda. (4690)

228. mál, barnalög

Garðar Sigurðsson:

Herra forseti. Þar sem ég á sæti í allshn. vil ég leyfa mér að taka það fram, að ég er ekki einn úr þeim meiri hl. sem flytur þá till. að vísa málinu til ríkisstj. Aldrei þessu vant er ég fylgjandi þeim félögum og fóstbræðrum sem flutt hafa hvert málið eftir annað saman hér í þingsölum, hv. þm. Vilmundi Gylfasyni og Ólafi Þ. Þórðarsyni, og vil samþykkja þeirra skilning og. afgreiða málið eins og það liggur fyrir. Ég segi því nei.