07.05.1982
Efri deild: 93. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4924 í B-deild Alþingistíðinda. (4723)

Starfslok efri deildar

Forseti (Helgi Seljan):

Þar sem þetta mun vera síðasti fundur þessarar hv. deildar á þessu þingi vil ég nota þetta tækifæri til þess að þakka hv. þdm. fyrir ágæta samvinnu á þessu þingi, samvinnu og samveru sem hefur ætíð verið svo sem best verður á kosið. Ég vil þakka skrifurum deildarinnar fyrir ágæt störf þeirra og sömuleiðis varaforsetum fyrir þá aðstoð sem þeir hafa veitt mér löngum stundum. Skrifstofustjóra Alþingis og öðru starfsfólki Alþingis færi ég alúðarþakkir fyrir annasöm og vandamikil störf. Öllum utanbæjarmönnum óska ég góðrar heimferðar og ánægjulegrar heimkomu og fjölskyldum ykkar allra árna ég alls velfarnaðar. Ég vona að við megum öll hittast heil hér á hausti komanda þegar Alþingi kemur saman á ný.