07.05.1982
Efri deild: 93. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4924 í B-deild Alþingistíðinda. (4724)

Starfslok efri deildar

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Fyrir hönd okkar þdm. vil ég þakka forseta góðar óskir í okkar garð. Jafnframt vil ég þakka honum fyrir í senn réttláta og röggsama fundarstjórn og umburðarlyndi við okkur þdm. Ég ber einnig þakkir okkar þdm. til skrifstofustjóra Alþingis og alls starfsfólks þingsins. Ég vil jafnframt flytja hæstv. forseta, fjölskyldu hans og starfsfólki þingsins velfarnaðaróskir okkar allra á komandi sumri. Ég bíð hv. þdm. að taka undir þessar óskir með því að rísa úr sætum. — [Deildarmenn risu úr sætum.]