07.05.1982
Sameinað þing: 91. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 4930 í B-deild Alþingistíðinda. (4741)

Þinglausnir

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Gefið hefur verið út svofellt forsetabréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég veiti hér með forsætisráðherra, Gunnari Thoroddsen, umboð til þess að slíta Alþingi, 104. löggjafarþingi, fimmtudaginn 6. maí 1982 eða síðar.

Gjört í Reykjavík 5. maí 1982.

Vigdís Finnbogadóttir.

Gunnar Thoroddsen.“

Samkv. þessu bréfi, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því, að þessu þingi, sem nú hefur lokið störfum, er slitið.

Alþingismönnum óska ég velfarnaðar, þjóðinni allri heilla og bið alþingismenn að minnast fósturjarðar vorrar, Íslands, með því að rísa úr sætum.

Þingheimur stóð upp og forsrh., Gunnar Thoroddsen, mælti: „Heill forseta vorum og fósturjörð. Íslands lifi.“ Tóku þingmenn undir þau orð með ferföldu húrrahrópi.

Var síðan af þingi gengið.