11.11.1981
Neðri deild: 11. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 641 í B-deild Alþingistíðinda. (488)
73. mál, Framkvæmdasjóður aldraðra
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Það er fyrst varðandi þær spurningar sem hér hafa verið bornar fram af hv. þm. Matthíasi Bjarnasyni varðandi úthlutun úr Framkvæmdasjóði aldraðra af tekjum þessa árs. Það er rétt, að það hefur verið úthlutað af tekjum þessa árs. Hins vegar er ég ekki með það við höndina hvernig þeirri úthlutun er háttað nákvæmlega, en ég skal sjá til þess, að upplýsingum um það verði komið á framfæri við nefndina. Ég er ekki með plöggin með mér, en þar hafa verið teknar nokkrar ákvarðanir. Hins vegar hefur fé komið heldur seint inn í þennan sjóð á þessu ári, að mér hefur fundist, og er þar um að kenna vissum uppgjörsreglum á svona sérsjóðum sem gilda í okkar stjórnkerfi, sem satt að segja er stundum ekki hægt að vera sérlega ánægður með og ég veit að hv. þm. Matthías Bjarnason þekkir eins og þeir aðrir sem hafa gegnt ráðherrastörfum.
Varðandi frv. að öðru leyti vil ég þakka þær undirtektir sem hér hafa verið. Þær hafa verið góðar og jákvæðar í heild. Ég vil þó aðeins segja það, að í 2. gr. tölul. 4 er í rauninni tekið af skarið um að einstaklingar og samtök, sem byggja fyrir aldraða, eigi að geta notið stuðnings úr þessum sjóði. Það er alveg nýtt ákvæði. Það var ekki í lögunum eins og við gengum frá þeim s. l. vor, og ég tel þetta framför. Það er verið að ýta undir frumkvæði hjá einstaklingum og félagasamtökum í þessum efnum. Ég tel það jákvætt. Mér finnst það nokkuð merkilegt að enginn skuli hafa rekið augun í það hér því að ég tel þetta í raun og veru eitt mikilsverðasta ákvæði frv. Varðandi aftur á móti það, hvort Framkvæmdasjóðurinn greiði hlut ríkisins í byggingum á móti sveitarfélögum, er það að segja, að auðvitað væri hugsanlegt að hlutur ríkisins væri sérmerktur á fjárlögum og færi ekki í gegnum Framkvæmdasjóðinn. Mín ákvörðun var hins vegar sú, að það væri skynsamlegra að hlutur ríkisins, eins og hann hafði verið áætlaður í B-álmu Borgarspítalans, færi í gegnum Framkvæmdasjóðinn til þess að tryggt sé að sú bygging komi öldruðum fyrst og fremst og einum til nota. Það var það sjónarmið sem ég var með og mér fannst þess vegna betra að taka upphæðina, sem var til framkvæmda vegna aldraðra á fjárlögum 1981, framreikna hana og veita henni síðan í gegnum Framkvæmdasjóð aldraðra til að Framkvæmdasjóður hefði yfirsýn yfir allt sviðið. Það var sú hugsun sem var á bak við þetta af minni hálfu. Ef sveitarfélög vilja byggja öldrunarþjónustudeildir, hjúkrunarrými við heilsugæslustöðvar, eins og hv. þm. Alexander Stefánsson gat um, t. d. í tengslum við Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði, er ekkert óeðlilegt að hlutur ríkisins í þeirri stofnun sé greiddur í gegnum þennan sjóð. Aðalatriðið er auðvitað að þessi sjóður komi öldruðum í landinu til góða. Það er meginatriðið. Um það heyri ég að allir hv. þm. eru sammála.
Sagt var að ég hefði ekki nefnt endurskoðun frumvarpanna sem hér voru lögð fram s. l. vetur. Það er ekki rétt. Ég nefndi þau hér aðeins áðan og greindi frá því að þau væru í endurskoðun og athugun hjá þessari nefnd. Aðalatriðið þar er auðvitað að menn reyni að koma sér niður á reglur í sambandi við félags- og heilbrigðisþjónustu við aldraða, sem samkomulag getur tekist um við sveitarfélögin alveg sérstaklega, vegna þess að í þessu máli erum við á því viðkvæma landi sem heitir „kostnaðarskipting ríkis og sveitarfélaga“ og það er reynslan, svo ég taki ekki dýpra í árinni, að menn sveifla sér ekkert mjög létt yfir það land í okkar stjórnkerfi. Það vill allt taka mikinn tíma. Það er vandinn sem við er að eiga í sambandi við þetta frv., ásamt auðvitað því að búa þannig um hnútana að frv., ef að lögum verður, tryggi öldruðum viðunandi félagslega þjónustu og heilbrigðisþjónustu.
Vegna þeirra orða, sem voru sögð hér áðan, vil ég að alveg skýrt sé að það fé, sem hér er verið að gera tillögur um að fari inn í Framkvæmdasjóðinn af þessum skatti, er hrein viðbót í þessum málaflokki. Það er ekkert verið að taka af því til annarra verka. En auk þessarar viðbótar er auðvitað um að ræða framlög ríkisins, sem eru framreiknuð frá fjárlögum ársins 1981 til fjárlagafrv. árið 1982.
Það er rétt, sem hefur komið fram hjá ýmsum þm., að þetta er kannske ekki besta skattaleiðin, og auðvitað má lengi um það deila, hvaða skattaleið er best að fara. Ég stóð hins vegar frammi fyrir því sem ráðh. þessara mála, að ég taldi mér skylt að reyna að ná samkomulagi um fjármuni í þennan málaflokk. Ég var tilbúinn að fallast á þetta sjónarmið, svona nefskatt, þó að mér sé hann ekki geðfelldur ella. En mér fannst að það væri alveg nauðsynlegt að það kæmi fram, hvort Alþingi og þá hvernig væri tilbúið til að leggja eitthvað á sig í þessum efnum. Þess vegna varð þessi skattur til. Ég hef orðið var við að það eru ýmsir sem telja að þessi skattlagning sé heppileg að því leyti hvað hún er skýrt mörkuð til framkvæmdamála aldraðra, sem hér eru á ferðinni.
Auðvitað er ekki verið að tvöfalda skattbyrði, eins og einhver hv. þm. sagði áðan. Það er ekki verið að því. Það er verið að hækka hana nokkuð frá því sem var á þessu ári, en það er ekki tvöföldun á raunverulegum útgjöldum fyrir þá sem þetta greiða.
Ég vona að ég hafi komið inn á þau atriði sem þm. nefndu í sínum ræðum. Ég endurtek þakkir mínar fyrir góðar undirtektir og læt það aftur koma fram, að ég mun að sjálfsögðu láta öll gögn liggja fyrir heilbr.- og trn. deildarinnar þegar hún fjallar um málið.
Mér þætti mjög vænt um ef það væri hægt að halda þannig á málum að afgreiðsla þessa frv. lægi fyrir fyrir áramót, þannig að það verði hægt að taka afstöðu til þessa við afgreiðslu fjárlaganna líka, vilji þingsins í þessum efnum liggi fyrir áður en fjvn. og Alþingi ganga endanlega frá fjárlögunum, vegna þess að samkv. lögunum um Framkvæmdasjóð aldraðra á að gera, í samráði við fjvn. og stjórn sjóðsins, áætlun til fimm ára í senn um framkvæmdir samkv. 1. gr. laganna. Við vinnum nú að því að gera tillögur um slíka áætlun til fimm ára, og við höfðum hugsað okkur að reyna að kynna fjvn. a. m. k. drög að þessari áætlun núna fyrir áramót, þannig að það verði hægt að taka það með þegar fjárlög verða afgreidd. Þá er nauðsynlegt að Alþingi hafi tekið afstöðu áður til þessa frv.