16.11.1981
Sameinað þing: 19. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 749 í B-deild Alþingistíðinda. (523)

Rannsókn kjörbréfs

Forseti (Steinþór Gestsson):

Mér hefur borist bréf sem hljóðar á þessa leið:

„Ólafur Jóhannesson, 5. þm. Reykv., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Framsfl. í Reykjavík, Haraldur Ólafsson dósent, Reykjavík, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt.

Helgi Seljan,

forseti Ed.

Haraldur Ólafsson dósent hefur setið á þingi á þessu kjörtímabili og þarf því ekki að taka kjörbréf hans til afgreiðslu og er hann boðinn velkominn til starfa.

Einnig hefur borist svofellt bréf:

„Ragnar Arnalds, 4. þm. Norðurl. v., hefur í dag ritað mér á þessa leið:

„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi um sinn leyfi ég mér með skírskotun til 138. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess, að 1. varamaður Alþb. í Norðurlandskjördæmi vestra, Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri. Siglufirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“

Þetta er yður, herra forseti, hér með tilkynnt með ósk um að þér látið fara fram rannsókn kjörbréfs í sameinuðu þingi.

Sverrir Hermannsson,

forseti Nd.

Með því að Hannes Baldvinsson framkvæmdastjóri hefur ekki setið á þingi á þessu kjörtímabili verður að fara fram rannsókn á kjörbréfi hans sem hér liggur fyrir, og vil ég biðja kjörbréfanefnd um að taka það til athugunar og gef fundarhlé í 5 mínútur. — [Fundarhlé.]