16.11.1981
Neðri deild: 12. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 797 í B-deild Alþingistíðinda. (564)
24. mál, listskreytingar opinberra bygginga
Flm. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Við þrír þm. Sjálfstfl., ég, hv. 7. landsk. þm., Halldór Blöndal, og hv. 3. þm. Reykn., Ólafur G. Einarsson, endurflytjum hér frv. sem við höfum flutt tvö undanfarin þing um listskreytingar opinberra bygginga. Ég sé ekki ástæðu til að hafa um þetta frv. mörg orð að sinni. Það var flutt til þess að fá það fest í lög, að skylt sé að verja til listskreytinga opinberra bygginga fjárhæð sem nemi 1–2% af byggingarkostnaði mannvirkis og að kostnaður, sem af þessu leiðir, teljist til stofnkostnaðar byggingar. Ég hef flutt framsögu fyrir samhljóða frv. tvö undanfarin þing og sé ekki ástæðu til að hafa um það mörg orð hér og nú. Ég vil þó vekja athygli á því, að mál þetta hefur komist á það mikla hreyfingu, að hæstv. menntmrh. hefur þegar á þessu þingi flutt frv. sem gengur í sömu átt þó að með nokkuð öðrum hætti sé. Í hans frv. er gert ráð fyrir að stofnaður sé sérstakur sjóður sem kosti listskreytingar opinberra bygginga. Hins vegar er það frv. á margan hátt töluvert ólíkt okkar frv. Ég rakti það nokkuð, þegar frv. hæstv. menntmrh. var til umr. hér, og sé ekki ástæðu til að endurtaka það. Við töldum hins vegar, þrátt fyrir frv. hæstv. ráðh:, rétt að endurflytja þetta frv. svo að þau sjónarmið, sem í því koma fram, og þær reglur, sem við höfum lagt til að settar yrðu, þetta yrði jafnframt til athugunar hjá þeirri hv. þingnefnd sem fjallar um frv. hæstv. ráðh.
Ég legg því til, herra forseti. að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og menntmn. hv. deildar.