19.10.1981
Sameinað þing: 5. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

Rannsókn kjörbréfs

Frsm. (Skúli Alexandersson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur komið saman til fundar og tekið fyrir kjörbréf Baldurs Óskarssonar, 1. varaþingmanns Alþb. í Suðurlandskjördæmi, en Garðar Sigurðsson, 4. þm. Suðurl., hefur samkv. því, sem hér var lýst frá forsetastóli áðan, lýst forföllum.

Nefndin leggur til að kosning Baldurs verði tekin gild og kjörbréfið samþykkt.