19.11.1981
Sameinað þing: 22. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 923 í B-deild Alþingistíðinda. (729)

344. mál, endurskoðun á lögum um fasteignasölu

Dómsmrh. (Friðjón Þórðarson):

Herra forseti. Spurt er hvað liði framkvæmd þál. frá 29. maí 1980 um kaup og sölu á fasteignum er fól í sér endurskoðun á lögum um fasteignasölu nr. 47/1938 og öðrum reglum sem um fasteignaviðskipti gilda.

Prófnefnd fyrir löggilta fasteignasala, sem starfar samkvæmt gildandi lögum um fasteignasölu, hefur tekið saman drög að frv. til nýrra laga um löggilta fasteignasala. Eru þau drög til athugunar í rn. og er þess að vænta, að unnt verði að leggja fyrir yfirstandandi Alþingi frv. til l. um löggilta fasteignasala.