23.11.1981
Efri deild: 14. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 959 í B-deild Alþingistíðinda. (756)

90. mál, Hæstiréttur Íslands

Forseti (Helgi Seljan):

Ég vil að gefnu tilefni óska eftir því við hv. þdm., að þeir taki sem mest tillit til þingskapa hvað snertir rétt til aths. og tímalengdar þeirra, hversu fróðlega lesningu sem þeir hafa fram að færa.