30.11.1981
Sameinað þing: 29. fundur, 104. löggjafarþing.
Sjá dálk 1172 í B-deild Alþingistíðinda. (930)

21. mál, votheysverkun

Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Hv. 5. þm. Vestf. minntist á Ingjaldssand og vildi tengja Ingjaldssand Framsfl. á þann veg, að formaður kjördæmisráðs Framsfl., sem er búsettur á Ingjaldssandi, verki í vothey. Hann er búsettur að Hrauni á Ingjaldssandi. En má ég gefa þær upplýsingar, að sá sem hér stendur var sjö sumur smali í Hrauni á Ingjaldssandi og þekkir því eins vel til þeirrar sveitar og hver annar.