17.12.1982
Efri deild: 25. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1259 í B-deild Alþingistíðinda. (1049)
136. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Félmrh. (Svavar Gestsson):
Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um breyt. á lögum um tekjustofna sveitarfélaga. Eins og Nd. hefur farið með málið er það aðeins fjórar greinar, en var fimm í upphafi.
1. gr. frv. kveður á um að heimilt sé að dreifa innheimtu fasteignaskatta á fleiri gjalddaga en verið hefur. Í gildandi lögum um tekjustofna sveitarfélaga hefur aðeins verið heimilt að dreifa innheimtunni á tvo gjalddaga, en hér er þetta opnað þannig, að unnt verði að innheimta fasteignaskatta með öðrum opinberum gjöldum svo sem eðlilegt má teljast.
2. gr. frv. gerir ráð fyrir að fasteignaskattar verði ekki innheimtir af hjónagörðum námsmanna og komi þá hjónagarðar til viðbótar við stúdentagarða og heimavistir, sem þegar eru undanþegin fasteignasköttum í lögum.
3. gr. frv. gerir ráð fyrir að þegar fasteignaskattar falla í vanskil, svo og önnur gjöld til sveitarfélaga, og eru í vanskilum um áramót, þá eigi að leggja dráttarvexti við það sem gjaldfallið er og teljist það allt höfuðstóll skuldar.
Þegar ég gerði grein fyrir þessu frv. í Nd. fylgdi því grein sem gerði ráð fyrir að inn í lögin um tekjustofna sveitarfélaga yrði sett nýtt ákvæði til bráðabirgða á þann veg, að þrátt fyrir ákvæði laganna væri óheimilt að hækka fasteignaskatta milli áranna 1982 og 1983 um meira en 65%. Hér var um að ræða stefnuyfirlýsingu af hálfu ríkisstj., sem hún birti í hv. Nd. Þessi till. var felld í Nd., m.a. með atkv. hv. þm. Framsfl., en ég vissi ekki betur en þeir hefðu tekið á sig ábyrgð á þessu frv. eins og aðrir stjórnarsinnar. Vakti þessi afstaða þeirra athygli mína í deildinni. Ég tel engu að síður fulla ástæðu til að rifja þetta mál upp í Ed., ef Ed.-menn teldu ástæðu til að fjalla um mál þetta, en að sjálfsögðu flyt ég hér sem ráðh. aðeins það frv. sem frá Nd. kemur.
Herra forseti. Ég legg til að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. félmn.