18.12.1982
Efri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1262 í B-deild Alþingistíðinda. (1060)

56. mál, fjörutíu stunda vinnuvika

Frsm. minni hl. (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Herra forseti. Frv. það sem nú er á dagskrá er, eins og þegar hefur verið tekið fram, fylgifrv. frv. þess sem við vorum að ræða áðan, frv. um orlof, 55. máls. Við sjálfstæðismenn tökum sömu afstöðu til þessa fylgifrv. og aðalfrv. og sitjum hjá við atkvgr.