18.12.1982
Neðri deild: 23. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1269 í B-deild Alþingistíðinda. (1097)

Þingfrestun

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Þar sem þetta er síðasti fundur fyrir jólahlé vil ég þakka hv. þdm. fyrir samstarfið það sem af er þessu þingi svo og skrifstofustjóra og starfsliði Alþingis öllu. Ég óska hv. þdm. og fjölskyldum þeirra gleðilegrar jólahátíðar og góðs komandi árs. Þeim sem eiga um langan veg heim að sækja óska ég góðrar heimferðar og heimkomu og bið að vér megum allir heilir hittast á nýju ári að starfa á hinu háa Alþingi.