18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1331 í B-deild Alþingistíðinda. (1153)

1. mál, fjárlög 1983

Sigurlaug Bjarnadóttir:

Herra forseti. Hér er farið fram á 10 þús. frá íslenska ríkinu til landshlutasamtaka kvenfélaganna á öllu landinu. Þetta nemur hálfum þingmannslaunum, hálfum mánaðarlaunum þm. Ég ítreka að ég lít á þessa upphæð fyrst og fremst sem örlitla viðurkenningu frá Alþingi fremur en eiginlegan starfsstyrk. Mér finnst, með tilliti til sögu íslenskra kvenfélaga og með tilliti til fenginnar reynslu af starfi þeirra frá upphafi og fram á þennan dag, að þau séu vel að þessu lítilræði komin frá Alþingi. Þess vegna segi ég já.