18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1331 í B-deild Alþingistíðinda. (1155)

1. mál, fjárlög 1983

Árni Gunnarsson:

Herra forseti. Till. um 50 þús. kr. framlag til undirbúningsrannsókna á eldi sjávarfiska hjá Hafrannsóknastofnun var borin fram til að fylgja eftir viljayfirlýsingu Alþingis í framhaldi af frv. sem ég og hv. þm. Magnús H. Magnússon fluttum. Þetta mál, sem ég tel eitt af mestu framfaramálum þjóðarinnar, hefur fengið hægan framgang. Nú hef ég hins vegar fengið vilyrði fyrir því frá formanni fjvn. að málið verði rækilega kannað í samráði við Hafrannsóknastofnun, og till. er því dregin til baka.