18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1333 í B-deild Alþingistíðinda. (1160)

1. mál, fjárlög 1983

Stefán Jónsson:

Herra forseti. Hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hafði rétt einu sinni rangt fyrir sér. Tapið stafar ekki af því að ekki hafi verið leyft að hækka verð á áburði, heldur vegna gengisbreytingar. Jafnvel þó Sighvatur Björgvinsson hefði haft að þessu sinni rétt fyrir sér, þá segi ég já.