18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1165)

Þingfrestun

Forseti (Jón Helgason):

Þar sem þessi fundur Alþingis er sá síðasti fyrir jólahlé vil ég leyfa mér að þakka hv. alþm. ágætt samstarf það sem af er þessu þingi og umburðarlyndi í minn garð. Ég þakka varaforsetum og skrifurum fyrir aðstoð þeirra, ennfremur skrifstofustjóra og starfsliði öllu fyrir ágætlega unnin störf á því ári sem nú er að líða.

Ég óska hv. alþm. og starfsliði Alþingis ásamt fjölskýldum þeirra gleðitegra jóla og farsæls komandi árs. Ég óska utanbæjarmönnum góðrar heimferðar og heimkomu og vænti þess að við megum öll hittast hér heil til starfa á nýju ári.