18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1166)

Þingfrestun

Ólafur G. Einarsson:

Herra forseti. Í nafni okkar alþm. óska ég hæstv. forseta og fjölskyldu hans gleðilegrar jólahátíðar og farsældar á komandi ári. Ég þakka forseta góða fundarstjórn og samstarf og tillitssemi við okkur þm. Skrifstofustjóra og öllum starfsmönnum Alþingis færi ég þakkir fyrir samstarf og vel unnin störf og óska þeim gleðilegra jóla. Ég ítreka óskir okkar um gleðilega jólahátíð hæstv. forseta til handa og bið þingheim að taka undir þær óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]