18.12.1982
Sameinað þing: 35. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1334 í B-deild Alþingistíðinda. (1168)

Þingfrestun

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Herra forseti. Forseti Íslands hefur gefið út svohljóðandi bréf:

„Forseti Íslands gjörir kunnugt: Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 105. löggjafarþings, frá 18. des. 1982 eða síðar, ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 17. jan. 1983.

Gjört í Reykjavík, 18. desember 1982.

Vigdís Finnbogadóttir.

Gunnar Thoroddsen.“

Samkv. þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því, að fundum þessa Alþingis er frestað frá 18. des. 1982 og verður þing kvatt til fundar á ný eigi síðar en 17. jan. 1983.

Hv. alþm., starfsfólki Alþingis og landslýð öllum flyt ég óskir um gleðileg jól og farsælt nýár.