17.01.1983
Sameinað þing: 37. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1337 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

Framhaldsfundir eftir þingfrestun

Forsrh. (Gunnar Thoroddsen):

Hinn 10. janúar 1983 var gefið út svohljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Ég hef ákveðið samkv. tillögu forsrh. að Alþingi skuli koma saman til framhaldsfunda mánudaginn 17. jan. 1983, kl. 14.00.

Gert í Reykjavík, 10. janúar 1983

Vigdís Finnbogadóttir

Gunnar Thoroddsen.