19.01.1983
Neðri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1411 í B-deild Alþingistíðinda. (1217)
Um þingsköp
Sighvatur Björgvinsson:
Herra forseti. Við þær aðstæður sem eru nú í þinginu hlýtur það að liggja alveg ljóst fyrir að svo best þokar málum hér fram og til afgreiðslu að um það sé skikkanlegt samkomulag í Alþingi milli forseta og þingflokka. Hingað til hefur verið leitast við af hálfu forseta og formanna allra þingflokka að ná ávallt samkomulagi um slík mál og hefur það yfirleitt ávallt tekist. Hæstv. forsrh. hefur sjaldnast átt þar aðild að.
Það kom fram í umr. um þetta mál í Ed. Alþingis í gær að sérstaklega var óskað eftir því að þeir Ed.-menn fengju í fyrsta lagi upplýsingar um framkvæmd þeirra láglaunabóta sem greiddar hafa verið samkv. ákvörðunum hæstv. fjmrh. í reglugerð og mjög hafa verið gagnrýndar. Í öðru lagi að þeir fengju ráðrúm til að fjalla um till. frá hæstv. sjútvrh. til breytinga á því frv. ríkisstj. sem hæstv. forsrh. segir að sé búið að liggja hér á Álþingi í tvo mánuði og menn ættu því að hafa haft nægan tíma til að skoða og koma fram breytingum við.
Þessi brtt., sem boðuð var í sjónvarpi, kom ekki frá stjórnarandstöðunni. Hún var boðuð af málsvara ríkisstj., hæstv. sjútvrh., þannig að mánuðirnir tveir virðast ekki hafa dugað hæstv. ríkisstj. Stjórnarandstæðingar féllust engu að síður á það, til að greiða fyrir málum í Ed. Alþingis, að hverfa frá þeirri ósk sinni að fá að fjalla um þessar tvennar upplýsingar í þeirri deild, en greiða fyrir afgreiðslu málsins úr Ed. í gær og töldu sjálfsagt að verða við þeim tilmælum. Á sameiginlegum fundi með formönnum þingflokka og forsetum, bæði deildarforsetum og forseta Sþ., sem haldinn var í dag, komu fram tilmæli um það að 1. umr. yrði ekki látin fara fram núna af ýmsum ástæðum, m.a. þeirri að allar horfur eru á því að sú nefnd sem á að fjalla um þetta mál, fjh.- og viðskn., geti ekki haldið fund um málið í þessari viku og því skipti það engu máli hvenær 1. umr. færi fram með hliðsjón af afgreiðslu málsins hér í deild.
Hæstv. forsrh. var ekki á þessum fundi í hádeginu fremur en hann hefur yfirleitt sótt þá fundi, þar sem reynt er að ná samkomulagi um afgreiðslu þingmála hér á þessum dögum, eftir að hæstv. ráðh. hefur misst nauðsynlegan stuðning við ríkisstj. sína. Á þessum fundi var nefnilega upplýst að það stæði til að boða fjh.og viðskn. saman til fundar kl. 9 n.k. föstudagsmorgun, eins og ráðh. var að upplýsa. En það kom einnig fram á þessum fundi að búið er að boða tvo þm., sem eiga sæti í þessari nefnd, til fundar í kjördæmi sínu, að tilhlutan hæstv. félmrh., til þess að vera við vígslu á heilsugæslustöð sem til stendur að vígja á Ísafirði kl. 2 n.k. laugardag. Ef menn ætla að komast á þann vettvang verða menn að fara með flugi frá Flugfélagi Íslands á föstudag. Það lá m.ö.o. fyrir að tveir af nm. í fjh.- og viðskn. deildarinnar mundu ekki geta sótt fund í fjh.- og viðskn. á föstudegi, því að þeir væru búnir að binda sig annars staðar. Það lá sem sé fyrir að jafnvel þó hv. formaður n. kæmi til fundar í n. á föstudagsmorgun, þá væru allar horfur á að ekki næðist lögmætur fundur. Hins vegar var strax fallist á það af öllum aðilum að þessu samkomulagi, sem samkomulagstilraunir reyndu að gera, að boða til fundar í fjh.- og viðskn. strax á mánudagsmorgun, jafnvel þótt 1. umr. hér yrði ekki lokið, og þannig reyna að greiða fyrir því að þetta mál fengi eins hraða afgreiðslu úr deildinni og framast væri unnt.
Þetta var hæstv. forsrh. að sjálfsögðu ekki kunnugt, .: Þingsköp. 1412 því að hann hefur ekki nú frekar en áður gert sér neitt far um að afla sér upplýsinga um hvernig viðræður standa um gang þingmála hér á Alþingi, á milli þeirra manna sem hafa verkstjórn með höndum á þeirri vinnu, sem eru forsetar þingsins. Ég mælist að sjálfsögðu ekkert undan því að taka 1. umr. um þetta mál nú þegar í stað, þó að ég hefði talið eðlilegra að menn reyndu að ná samkomulagi um þessi mál, og var tilbúinn til þess fyrir mitt leyti að greiða fyrir því, hvernig svo sem það samkomulag gæti orðið. Ég setti ekki fram neina sérstaka ósk frá okkur Alþfl.-mönnum aðra en þá að menn reyndu að ná samkomulagi. Og ég vil taka það fram að allir formenn þingflokka, sem á fundinn komu í hádeginu, og allir forsetar, sem þar sátu, voru reiðubúnir að ganga til samkomulags um þetta mál. Ástæðunnar fyrir því að ekki getur orðið samkomulag er því ekki þar að leita. Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú, að meðal þeirra manna sem við sögu málsins koma er einn sem ekki hefur áhuga á því að ganga til samkomulags um störf Alþingis. Það er sá maður sem hefur misst meiri hl. sinn til þess að koma vilja sínum fram hér í þessari hv. deild.