19.01.1983
Neðri deild: 26. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1428 í B-deild Alþingistíðinda. (1230)

Um þingsköp

Geir Hallgrímsson:

Herra forseti. Við teljum okkur í þingflokki Sjálfstfl. hafa fyrirheit um að hafa fullan tíma til þingflokksfundar og raunar meira vegna þess að við höfum hér boðað til þingflokksfundar raunar samkv. venju, en um það mál sem fjallað hefur verið um á milli flokka, kjördæmamálið, og þess vegna sé ekki efni til þess að hefja fund aftur hálfsex.