02.02.1983
Sameinað þing: 45. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1702 í B-deild Alþingistíðinda. (1427)

91. mál, hvalveiðibann

Eiður Guðnason:

Herra forseti. Í þessum náttúruverndarmálum sem öðrum eigum við að lúta vísindalegum rökum þegar þau eru til staðar. Þau eru ekki til staðar í þessu tilviki og Alþingi Íslendinga á ekki að láta erlenda þrýstihópa segja sér fyrir verkum. Ég segi nei.