08.02.1983
Sameinað þing: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1793 í B-deild Alþingistíðinda. (1541)
141. mál, byggðaþróun í Árneshreppi
Ólafur Þ. Þórðarson:
Herra forseti. Það kom fram hjá 4. þm. Austurl. að við stjórnarþingmenn hefðum ekki unnið nægilega vel að þessu máli, og við erum nú vissulega margir hverjir einfaldir í roðinu í stjórnaraðstöðu til þess að fylgja því eftir. Ég sat ekki hér þegar þeim ráðum var ráðið í haust að ganga þann veg frá hafnamálum á Vestfjörðum að þetta væri ekki inni, en vissulega er það þó ekki vafaatriði að okkur er það mikið alvörumál, öllum þm. Vestf., að þetta mál komist í höfn sem fyrst. Hitt vakti undrun mína, að hann bauð upp á það, að á eftir Bakkafirði væri allt í lagi að taka þetta mál fyrir. Það má vel vera að þann veg líti sá ágæti Vestfirðingur og 4. þm. Austurl. á þetta mál. En ég vildi gjarnan fá við því svör, hvar það var samþykkt og hvenær að þannig skyldi málum hagað að Bakkafjörður skyldi tekinn fyrir á undan og svo skyldi komið að Árneshreppi.