08.02.1983
Sameinað þing: 48. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1794 í B-deild Alþingistíðinda. (1543)

141. mál, byggðaþróun í Árneshreppi

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég lít svo á að Alþingi hafi lýst vilja sínum í þessu máli og ég lít svo á að það sé jafngilt hvort sem ákvörðun er tekin um það á fjárlögum eða lánsfjáráætlun að fara í þessar framkvæmdir. Þess vegna tel ég að öll nótt sé ekki úti á þessu þingi og vil undirstrika þá skoðun mína.