11.02.1983
Neðri deild: 37. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1871 í B-deild Alþingistíðinda. (1617)

Um þingsköp

Sighvatur Björgvinsson:

Herra forseti. Ég er áður búinn að skýra frá því hvers vegna ekki eru líkur á að verði kvöldfundir hér í kvöld, þannig að þessum fundi lýkur um kl. 7. Hæstv. ráðh. hefur lýst sig reiðubúinn til þess að taka þetta mál til efnislegrar umfjöllunar áður en þessum fundi lýkur, svo menn þurfi ekki að bíða fram á mánudag eftir að heyra skýringar hans. Þess vegna fer ég þess hér og nú á leit við hæstv. forseta að hann ákveði að gefa okkur a. m. k. eina klukkustund áður en fundinum lýkur til þess að fjalla um þetta mál, eftir að hæstv. iðnrh. hefur lýst sig reiðubúinn til þess, og þessi umr. geti farið fram kl. 6.