11.02.1983
Neðri deild: 37. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1873 í B-deild Alþingistíðinda. (1621)
Um þingsköp
Forseti (Alexander Stefánsson):
Eins og ég tók fram í upphafi máls ætti öllum hv. þm. að vera kunnugt um það að umr. utan dagskrár varðandi mál sem einhver viðkomandi ráðh. á að vera í forsvari fyrir hafa ekki farið fram hér á hv. Alþingi öðruvísi en viðkomandi ráðh. hafi samþykkt það fyrir fram. Hér er gripið inn í miðjar umr. og fyrir liggur að viðkomandi ráðh., sem málið snýr að, hefur ekki viljað taka efnislegan þátt í umr. utan dagskrár um málið á þessu stigi. Þess vegna hlýtur forseti að fara eftir þeim venjum sem um þetta hafa verið til þessa. Ég endurtek að ég get ekki gert annað. Ég tel að ég hafi ekkert vald til þess að þvinga ríkisstj. eða ráðh. til þess að taka þátt í umr. sem þeir óska ekki eftir að fari fram meðan mikilvægt dagskrármál er í gangi. (Gripið fram í: Geturðu ekki bara opnað blaðamannafund?)
Þess vegna verð ég að úrskurða að þessum umr. um þingsköp skuli ljúka.