14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1937 í B-deild Alþingistíðinda. (1674)

Um þingsköp

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég vil segja út frá því sem herra forseti sagði hér áðan, að ég hef ekki lokið ræðu minni um dagskrármálið og mun ljúka henni síðar, en á hitt vildi ég minnast og þess vegna bað ég um orðið um þingsköp, að mér var kunnugt nm að hæstv. forseti hafði fallist á að þingfundir yrðu nú kl. 8.30 og ég tel að hver þm. hafi rétt til að sitja þingfundi. — [Fundarhlé. ]