14.02.1983
Neðri deild: 38. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1940 í B-deild Alþingistíðinda. (1680)
Um þingsköp
Matthías Á. Mathiesen:
Herra forseti. Það rit sem hefur verið skrifað um starfsreglur Alþingis þar sem greinilegast er frá þeim skýrt er rit dr. Bjarna Benediktssonar fyrrum forsrh. „Deildir Alþingis“. Ég sé ekki ástæðu til þess hér og nú að fara með það sem þar stendur, vísa mönnum aðeins á það rit til lesturs, þar sem skýrt er tekið fram að það eru tvenns konar frumvörp sem lögð eru fyrir Alþingi. Það eru stjfrv. og það eru þmfrv. Forseti þessarar deildar hefur gefið sinn úrskurð. Frv. á þskj. 334, sem er frá forsrh., hefur hann úrskurðað sem stjfrv.