15.02.1983
Efri deild: 44. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 1955 í B-deild Alþingistíðinda. (1703)
190. mál, orkulög
Davíð Aðalsteinsson:
Herra forseti. Að mínum dómi er ekki ástæða til að fara mörgum orðum um efnisatriði þessa frv. Það er að sjálfsögðu laukrétt, sem fram hefur komið, að gert er ráð fyrir að ráðh. staðfesti gjaldskrár hitaveitna, héraðsrafmagnsveitna og jafnframt Rafmagnsveitna ríkisins. Að mínum dómi er jafnvel eðlilegra að stjórnvöld fylgist með heildsöluverðlagningu, ekki síður heildsöluverðlagningu en smásöluverðlagningu. A. m. k. hef ég þá skoðun.
Um efnislega meðferð þess sem hér er rætt vil ég leyfa mér að benda á, eins og raunar þegar hefur komið fram, að í lögum um Landsvirkjun, 11. gr. þeirra laga, er þess getið að stjórn Landsvirkjunar ákveði að fengnum tillögum ákveðinnar stofnunar, sem nú ber reyndar annað nafn, heildsöluverð Landsvirkjunar á raforku og skal raforkuverðið við það miðað að eðlilegur afrakstur fáist af því fjármagni sem á hverjum tíma er bundið í rekstri fyrirtækisins. Einnig skal að því stefnt að fyrirtækið skili nægilegum greiðsluafgangi til þess að það geti jafnan með eigin fjármagni og hæfilegum lántökum tryggt notendum sínum næga raforku. Eins og þetta frv. liggur fyrir sem hér er til umr., er um að ræða breytingu á orkulögum. Ég vil benda á hvort ekki geti hugsanlega myndast réttaróvissa í þessu sambandi. Vegna þess arna geri ég ráð fyrir að við í iðnn. munum athuga gaumgæfilega hvort ekki þurfi jafnframt að huga að breytingu á 11. gr. laga um Landsvirkjun. Ég vildi aðeins koma þessu að.
Ég vil í lokin lýsa yfir því, að ég er efnislega sammála því sem lagt er til með frv. Ég vil þó vekja athygli á því, að orðalag er eilítið öðruvísi í 1. gr. frv. en er í öðrum lagagreinum sem víkja að sama efni um orkuveitur.
Ég ætla ekki að hafa þessi orð fleiri. Ég tók fram í upphafi að mér þætti ekki ástæða til að fara í almenna umr. um orkumál út af þessu eina frv., en ég vildi láta þess getið að athugað verði samhengi við 11. gr. landsvirkjunarlaga svo að ekki myndist réttaróvissa í þessum efnum.