13.10.1982
Sameinað þing: 2. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 12 í B-deild Alþingistíðinda. (20)

Embættisfærsla sýslumanns á Höfn í Hornafirði

Guðmundur J. Guðmundsson:

Herra forseti. Hér er um fsp. að ræða, sem fjallar um hörmulegt mál sem erfitt er að fjalla um þannig að Alþingi haldi sóma sínum, og menn getu skipst á skoðunum um það. Hvort hv. fyrirspyrjandi sé rétti fyrirspyrjandinn til að halda á málinu af hógværð, jafnviðkvæmt og það er, efa ég. En ég vil ekki afsala mér þeim rétti að spyrja hér hæstv. ráðh. um einstaka embættismenn og hef það í huga og segi því já.