01.03.1983
Sameinað þing: 59. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2368 í B-deild Alþingistíðinda. (2114)
Umræður utan dagskrár
Menntmrh. (Ingvar Gíslason):
Herra forseti. Ég vil vegna ræðu hv. 11. þm. Reykv. Ólafs Ragnars Grímssonar taka það mjög skýrt fram að ég var ekki að staðfesta eitt eða neitt í hans málflutningi eða ræðu, það er síður en svo að svo hafi verið. Ég kom eingöngu í ræðustólinn til að útskýra vissa þætti þessa máls.
Höfuðatriðið var þetta: að fyrir till. forsrh. ákváðu ráðherrar að heimsækja utanrrh. kl. 3 á afmælisdegi hans. Þetta var eingöngu sagt í upplýsingaskyni og alls ekki til þess að taka undir eitt eða neitt í málflutningi hv. 11. þm. Reykv., sem auðvitað var ekkert annað en persónuleg árás og aðdróttanir að hæstv. samgrh. Undir slíkt tók ég að sjálfsögðu ekki.
Auk þess tók ég það skýrt fram, að þar sem ég væri að fara í þetta boð hjá Ólafi Jóhannessyni utanrrh. mundi ég greina samgrh. frá þessum umr. Það er auðvitað hans að taka ákvörðun um hvort hann vill koma hingað fyrr en hann hugsaði sér eða taka þetta mál fyrir fyrr en til hefur staðið, eins og hv. þm. Friðrik Sophusson hafði farið fram á. Það er hans að ákveða það. Það eina sem ég geri er að ég mun að sjálfsögðu segja honum frá þessum umr. þar sem ég var viðstaddur þær, en hann ekki. Ég efa ekki að hæstv. samgrh. mun koma á óvart hvernig þessar umr. hafa fallið, m. a. og fyrst og fremst vegna þess að ég tók það svo, að hann hefði samið við hv. þm. Friðrik Sophusson um að þetta mál yrði tekið fyrir síðar, e. t. v. á morgun ellegar á fimmtudag.
Herra forseti. Ég skal ekki hafa þetta fleiri orð, en ég vil alveg frábiðja mér að það sjáist nokkurs staðar á prenti eða heyrist að ég hafi tekið undir málflutning hv. l 1. þm. Reykv.