01.03.1983
Sameinað þing: 59. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2371 í B-deild Alþingistíðinda. (2117)

Um þingsköp

Forseli (Jón Helgason):

Vegna fsp. hv. 11. þm. Reykv. vil ég benda honum á að nefndakosningar fara fram samkv. 15. gr. þingskapa. Það skal gera í upphafi þings og þar eru engin ákvæði um að slíka kosningu skuli endurtaka, enda þótt menn segi sig úr þeim flokkum sem þeir voru kosnir fyrir. Á þessum grundvelli hefur slíkt ekki verið gert þegar eitthvað þessu líkt hefur komið fyrir áður.