03.03.1983
Neðri deild: 49. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2455 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)

211. mál, lán vegna björgunar skipsins Het Wapen

Iðnrh. (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Ég tek undir sparnaðarviðleitni og ráðdeild á erfiðum tímum. Ég geri ráð fyrir að hv. 4. þm. Suðurl. hafi áttað sig á að þessi vonarpeningur er ekki í Suðurlandskjördæmi, heldur í Austurlandskjördæmi. en þrátt fyrir það tel ég hann allvel geymdan í sandi um sinn og greiði ekki atkv.