04.03.1983
Efri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2512 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)
Umræður utan dagskrár
Kjartan Jóhannsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. utanrrh. fyrir svörin við fsp. mínum. Ég tel að nauðsynlegt hafi verið að þessi umr. færi hér fram svo að ekki væri misskilningur á ferðinni um að það væri hugmyndin að flytja gamla og ónýta tanka yfir á Helguvíkursvæðið, heldur ætti að standa að framkvæmdum eins og til hefði staðið í upphafi. Að því leytinu tel ég að þessi umr. hafi verið gagnleg. Ég vænti þess að hæstv. utanrrh. beiti sér fyrir því að þessum framkvæmdum verði hraðað eftir mætti í samræmi við ályktun Alþingis og að ekki þurfi að verða á þessu frekari dráttur en orðinn er með tilliti til þess hversu nauðsynlegt þetta mál er og hverjir hagsmunir eru í húfi fyrir byggðarlögin á þessu svæði og að því er varðar bæði mengunarhættu og eldvarnir.
Að því er varðar ræðu hv. 11. þm. Reykv., Ólafs Ragnars Grímssonar, þá skiptir það náttúrlega ekki máli þó að hann haldi sömu ræðuna hér í sjötta sinn, því að hann hefur haldið hana fimm sinnum áður. Það eru engir á þeirri skoðun, sem hann heldur hér fram, í byggðarlögunum þarna suður frá. Það eru engir á því að fara þessa Esso-leið, sem hann vill fara í þessum olíutankamálum, aðrir en forstjóri Esso og hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson — eða hugsanlega hans þingflokkur. Það mál er því gjörsamlega afgreitt.
Hitt fannst mér líka heldur óviðkunnanlegt hjá þm., þegar hann hafði í hótunum um að eitthvert minnihlutavald í skipulagsmálum yrði hugsanlega notað til að stöðva þetta mál. Það er yfirgnæfandi meiri hluti fyrir framgangi málsins hér á Alþingi. Alþingi hefur látið í ljós álit sitt, hæstv. utanrrh. er að framkvæma það og það verður auðvitað að hafa sinn gang og þýðir ekki að beita nokkrum bolabrögðum minni hlutans í því. En ég þakka hæstv. ráðh. fyrir svörin.