04.03.1983
Neðri deild: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2528 í B-deild Alþingistíðinda. (2356)
22. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Frsm. minni hl. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Aðeins örstutt aths. Ég held að það sé mikill misskilningur hjá hv. 1. landsk. þm. að við sem mælum gegn því að létta þessum skatti af sumarbústöðum séum að fjandskapast við þetta fólk. Ég vil aðeins benda á það, sem er aðalrökstuðningur minn í þessu máli, að ég álít að sveitarfélögin sjálf eigi að ráða yfir þessum tekjustofni og löggjafinn á ekkert að vera að skipta sér af því meir. Þetta er sjálfstæður tekjustofn sveitarfélaga og þau eiga að ráða því sjálf hvort þau gefa afslátt af þessu gjaldi eða ekki. Mörg þeirra gera það. Hitt er svo annað mál, að ég er sammála hv. þm. um það, að sýsluvegasjóðsgjaldið er umdeilanlegt. Þar erum við alveg á sama máli. Ég vil fella það niður af sumarbústaðaeigendum vegna þess að það er viðurkennt að sýsluvegir eru yfirleitt ekki lagðir að sumarbústöðum, nema þá þeim sem eru undanþegnir fasteignasköttum. Það liggur fyrir líka. Ég treysti því að hv. þdm. fari ekki að hrófla við tekjustofnum sveitarfélaga. Þau eiga að hafa þá í friði og ráða því sjálf hvernig þeim er hagað.