04.03.1983
Neðri deild: 51. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2541 í B-deild Alþingistíðinda. (2366)
225. mál, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins
Flm. (Ólafur G. Einarsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um breyt. á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins. Flm. ásamt mér eru hv. þm. Sighvatur Björgvinsson, Jóhann Einvarðsson og Guðrún Helgadóttir.
Þetta frv. felur í sér þá einu breytingu, að starfsmenn fræðsluskrifstofa geti gerst aðilar að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins með samþykki stjórnar sjóðsins. Í dag hefur stjórn lífeyrissjóðsins heimild til að veita aðild starfsmönnum bæjar-, sýslu- og hreppsfélaga og stofnana sem þeim tilheyra og sérstakan fjárhag hafa. starfsmönnum landshlutasamtaka sveitarfélaga og ýmsum fleiri, en starfsmenn fræðsluskrifstofa eru ráðnir af fræðsluráðum. Fræðslustjóri er hins vegar embættismaður ríkisins, en fræðsluráð er kosið af landshlutasamtökum sveitarfélaga. Þess vegna eru starfsmenn fræðsluskrifstofa hvorki ráðnir af ríkinu né sveitarfélögum, þótt þeir séu í raun opinberir starfsmenn.
Rekstrarfé fræðsluskrifstofa kemur úr ríkissjóði og frá sveitarfélögum eða samtökum þeirra. Það hefur verið leitað eftir því við stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins að starfsmenn fræðsluskrifstofa fengju aðild að sjóðnum, en lagaheimild skorti til þess að stjórnin geti heimilað aðild. Vegna þessa er þetta frv. flutt, til þess að stjórn sjóðsins geti veitt umræddum starfsmönnum fræðsluskrifstofa aðild að sjóðnum. Verðtrygging, sem slíkri aðild fylgir, yrði að sjálfsögðu greidd af því fjarmagni sem fræðsluskrifstofur hafa til umráða. Þarna er ekki um fjölmennan hóp að ræða, um það bil 25 manns. Telja verður sanngirnismál að þessir aðilar fái þessa aðild. Þeir hafa til þessa borgað í Söfnunarsjóð lífeyrisréttinda hjá fjmrn.
Þótt skammt sé til þinglausna vona ég að samkomulag verði um afgreiðslu þessa máls, þannig að frv. geti öðlast samþykki nú á þessu þingi.
Ég legg til, herra forseti, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. fjh.- og viðskn.