04.03.1983
Efri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2558 í B-deild Alþingistíðinda. (2406)

Um þingsköp

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Mér finnst eðlilegt að ráðh. sé viðstaddur þegar stjfrv. er tekið til 1. umr. í deildinni. Það er nær viðtekin regla að svo sé. Kannske eru undantekningar, en þá er um veigaminni mál að ræða en hér er. Þó þetta mál sé ekki mikið að vöxtum þá fjallar það um efni sem er mikilsvert.