07.03.1983
Efri deild: 58. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2569 í B-deild Alþingistíðinda. (2423)

175. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Frsm. (Stefán Guðmundsson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. sjútvn. Ed. um frv. til l. um breytingu á lögum nr. 81 23. júlí 1974, um Verðlagsráð sjávarútvegsins, sbr. lög nr. 27 26. apríl 1978.

Nefndin hefur rætt frv. og varð sammála um að leggja til við þessa ágætu deild að það verði samþykkt eins og það kom frá Nd.

Undir nál. skrifa Stefán Guðmundsson, Guðmundur Bjarnason, Egill Jónsson, Guðmundur Karlsson, Geir Gunnarsson og Karl Steinar Guðnason.