07.03.1983
Efri deild: 58. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2578 í B-deild Alþingistíðinda. (2432)

224. mál, ríkisreikningurinn 1979

Fjmrh. (Ragnar Arnalds):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um samþykkt á ríkisreikningnum fyrir árið 1979. Frv. þetta er samið eftir ríkisreikningi fyrir árið 1979, sem lagður hefur verið fyrir þingið samtímis frv. Í frv. eru raktar niðurstöðutölur ríkisreiknings.

Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið jafnaugljóst og það er, en leyfi mér að leggja til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. fjh.- og viðskn.