07.03.1983
Neðri deild: 53. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2596 í B-deild Alþingistíðinda. (2460)
206. mál, stjórnarskipunarlög
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég vil í örfáum orðum lýsa afstöðu minni til þessa frv. til stjórnarskipunarlaga, sem hér er til umr. Ég stend, eins og nál. ber með sér, að afgreiðslu stjórnarskrárnefndar á málinu og legg til að frv. verði samþykkt með þeirri einu breytingu sem hv. 1. þm. Vestf. gerði hér ágætlega grein fyrir rétt áðan.
Í þessari afstöðu minni til frv. til stjórnarskipunarlaga felst það eitt, að ég er sáttur við núverandi kjördæmaskipan og get fellt mig við að þm. verði fjölgað í 63, lágmarkstala þm. í dreifbýliskjördæmum verði fimm, nema sex í Norðurl. e. og svo Suðurlandi, þ. e. a. m. k. 32 af þessum 63 verði kjörnir utan Reykjavíkur og Reykjaness, og að atkvæðisbærir verði menn 18 ára gamlir. Hins vegar vil ég taka það fram að með þessu er ég ekki að samþykkja fskj. sem prentuð eru með frv., svo sem drög að frv. til 1. um breyt. á lögum um kosningar til Alþingis, nr. 52 frá 1959, með síðari breytingum. Þeim drögum er að ýmsu leyti áfátt.
Ég mun ekki eyða að þessu sinni tíma hv. þd. til að ræða þessi kosningalagadrög. Á nýju þingi gefst tækifæri til þess að lagfæra drögin innan ramma þeirrar stjórnlagabreytingar, sem hér er verið að gera.
Ég hafna hugmyndum um að tengja afgreiðslu stjórnarskrármálsins ákvörðun um kosningar strax að loknum aprílkosningum, því að ég tel það ábyrgðarleysi að flana út í síðari kosningar án þess að reyna í millitíðinni að reisa rönd við þeirri dýrtíðarholskeflu sem ógnar þessu þjóðfélagi. Ég tel að þeim þm. sem kjörnir verða í kosningum í apríl beri skylda til framar öllu öðru að láta það verða sítt fyrsta verk að koma sér saman um viðhlítandi efnahagsaðgerðir til að varna bráðasta háskanum. Annað væri raunar algert ábyrgðarleysi við þær skuggalegu kringumstæður sem við búum nú við. Síðan, þegar bráðasta háskanum væri bægt frá, getur að sjálfsögðu nýkjörinn meiri hluti, sem myndast kann, ákveðið kosningar ef honum svo sýnist.
Ég vil ekki orðlengja þetta meira að sinni, en vildi láta þessi sjónarmið mín koma fram hér og nú.
Ég vil að endingu þakka meðnm. í hv. Nd. gott samstarf og þá sérstaklega formanni nefndarinnar, hv. 1. þm. Vestf., sem stjórnaði nefndarstarfinu af mikilli prýði.