08.03.1983
Neðri deild: 54. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2664 í B-deild Alþingistíðinda. (2491)

Um þingsköp

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Ég vil taka fram að í ljós hefur komið mikill áhugi hjá dm. í hv. Ed. að komast að í umr. um þetta mál. Og þar sem þetta er svona mikið til hliðar við þingsköp eins og menn sjá og enn þess að geta, að upplýsingar verða væntanlega komnar í dag, fyrir fund sem yrði til að mynda í Sþ. á morgun, vildi ég spyrja hvort hv. þdm. gætu ekki hugsað sér að efni þessarar umr. verði geymt þar til fundur yrði haldinn í Sþ. á morgun.