08.03.1983
Neðri deild: 54. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2665 í B-deild Alþingistíðinda. (2494)

Um þingsköp

Forseti (Sverrir Hermannsson):

Eins og ég sagði eru ekki um þetta fastákveðnar reglur. Þetta byggist á einhverri oftúlkun og e. t. v. misskilningi, en hann er hér með leiðréttur og nýtur enginn, hvorki formlegir flokkar né verðandi flokkar, neinnar sérstöðu.