08.03.1983
Neðri deild: 55. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2692 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)

Um þingsköp

Forseti (Garðar Sigurðsson):

Ég get ekkert sagt um hvað hv. fyrrv. þm. Lúðvík Jósepsson hefur sagt í þessum efnum, en ég þykist muna að ég hafi oft setið með honum kvöldfundi kvöld eftir kvöld þegar það hefur átt við.

Varðandi vinnulöggjöfina er ég enginn sérfræðingur í því. En ég veit að hún setur almennar reglur, en gefur einnig undanþágur þegar þannig stendur á. Og þannig stendur einmitt á nú.