09.03.1983
Neðri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2754 í B-deild Alþingistíðinda. (2623)

206. mál, stjórnarskipunarlög

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Eins og rækilega hefur komið fram í umr. um þessi mál er ég samþykkur því markmiði, sem hér er lýst yfir, að löggjafarvald og framkvæmdarvald skuli aðgreint, en vegna formgalla þessarar till. treysti ég mér ekki til þess að greiða henni atkv. Ég greiði því ekki atkv.