09.03.1983
Neðri deild: 56. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2760 í B-deild Alþingistíðinda. (2663)

154. mál, veiting ríkisborgararéttar

Frsm. (Jósef H. Þorgeirsson):

Herra forseti. Allshn. þessarar deildar hefur haft til athugunar frv. til l. um veitingu ríkisborgararéttar. Allshn. beggja deilda hafa unnið saman að athugun þessa máls í samvinnu við skrifstofustjóra Alþingis. Er nefndin sammála um það að leggja til að frv. verði samþykkt og flytur brtt. á þskj. 436 um að þremur nöfnum verði bætt inn á skrána eins og hún kom frá Ed.