09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2827 í B-deild Alþingistíðinda. (2765)

230. mál, almannatryggingar

Pétur Sigurðsson:

Herra forseti. Í framhaldi af fsp. hv. þm. Halldórs Ásgrímssonar langar mig til að spyrja hvort túlka megi þessi lög þannig, að kostnaðarmat eigi líka að fara fram á yfirlýsingu ráðh. um útgjöld sem nema jafnvel sömu upphæðum og fólgin eru í þessu frv. og öðrum.