09.03.1983
Neðri deild: 57. fundur, 105. löggjafarþing.
Sjá dálk 2828 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)

230. mál, almannatryggingar

Félmrh. (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Að gefnu tilefni vil ég taka fram að heilbr.- og trmrn. mun að sjálfsögðu veita allar upplýsingar sem fyrir liggja um þetta mál, sem eru ítarlegar, og einnig hefur fjárlaga- og hagsýslustofnun farið höndum um þetta mál og tekið saman ítarlega greinargerð um það.

Ég vil hins vegar taka það fram, að það er mat rn. að það séu allar lagaheimildir þegar til í lögum til þess að taka ákvarðanir í því efni sem uppi eru tillögur um í lagafrv.